Einkažjįlfun ķ einkaumhverfi
Nįšu įrangri, nįšu markmišum žķnum!

Heilsukvosin er þjálfunarleið fyrir þá sem af einhverri ástæðu vilja ekki æfa á líkamsræktarstöð, en langar að æfa undir leiðsögn góðs einkaþjálfara til að ná árangri og markmiðum sínum. Heilsukvosin býður upp á þjálfunarmöguleika sem á engan sinn líka hér á landi, þar sem þjálfari sameinar menntun sína og reynslu á sviði þjálfunar og sálfræði. Heilsukvosin er ekki líkamsræktarstöð heldur þjálfunarhús fyrir alla þá sem vilja einstaka einkaþjálfun í einkaumhverfi þar sem þjálfunin er algerlega sniðin að markmiðum og óskum einstaklingsins.

Heilsurįš #4

Athugašu matarręšiš

Er matarræðið ekki í góðum farvegi hjá þér? Grunnurinn að góðu matarræði er að borða morgunmat innan við 30 mín eftir að þú vaknar til að koma grunnbrennslunni sem fyrst í gang og því verður heildarbrensla þín yfir daginn meiri. Borða 5-6sinnum á dag en ekki vera að narta í einhvað allann daginn, þó svo það sé hollt. Ekki borða eftir kl 20:00. Drekktu vatn. Slepptu öllu gosi, nammi, snakki og bakarísmat. Þegar þú ert komin með grunninn á hreint þá er hægt að halda áfram.

Um Heilsukvos

Hugmyndafræðin

Hugmyndin er að bjóða fólki, sem af einhverjum ástæðum vill ekki fara inn á líkamsræktarstöðvar, þann kost að æfa og ná árangri undir leiðsögn góðs þjálfara í einkaumhverfi. Með þessu næ ég að sameina þá menntun og reynslu sem ég hef á sviði sálarfræði og þjálfunar. Ég hef mikla trú á almennu heilbrigði og hvað það getur gert mikið fyrir líf fólks að eiga áhugamál og rækta líkamann. Þegar ég rakst á húsnæðið í Álafosskvosinni þar sem Heilsukvosin er nú, sá ég að ég yrði að demba mér í að framkvæma hugmyndina sem ég var með í kollinum. Umhverfið og húsnæðið eru nákvæmlega sniðin að því að geta boðið upp á einkaþjálfun í einkaumhverfi. Heilsukvosin er ekki líkamsræktarstöð heldur þjálfunarhús og umhverfi fyrir þá sem vilja einstaka einkaþjálfun til að ná árangri og markmiðum sínum.

 

Fyrirkomulag Einkaþjálfunar

Heilsukvos býður upp á einkaþjálfun fyrir bæði kyn og alla aldurshópa, þar sem einn eða fleiri geta æft saman með þjálfara 1 klukkustund í senn eins oft í viku og óskað er. Þegar tveir eða fleiri koma saman í þjálfun þá deilist kostnaður þjálfunarinnar niður á einstaklingana.

Þjálfunin byggist á því hvar áhugi þinn liggur til þjálfunar og er algerlega miðuð að þínum markmiðum og óskum um þjálfun. Ég leitast við að hafa æfingarnar fjölbreyttar, nota náttúruna og auka álagið með því að beita líkamanum á ólíkan hátt. Að æfa í óstöðugleika undir hæfilegri stjórn reynir meira á djúp- og stöðugleikavöðva líkamans, sem gerir líkamann stöðugri í kringum liði og miðsvæði líkamans og minnkar líkur á meiðslum.

Þjálfunin fer fram inni í sérútbúnum sal, úti í öllu því umhverfi sem er í kring um Álafosskvosina og einnig ef vilji er fyrir þjálfa ég í sundlaug Varmá, þar sem ýmist er synt eða hlaupið í vatni í svo til gerðu belti. Það er vel tekið á því í kvosinni og hver einstaklingur fær að ögra líkama sínum vel og uppgötvar  að hann getur mun meira en hann bjóst við í fyrstu.  

Markmið er fyrsti hluti þess að ná árangri. Um leið og þú hefur sett þér markmið hafa líkurnar á því að ná árangri margfaldast. Markmið getur verið hvað sem er og er mikilvægt að það sé raunhæft og snúist ekki um að sigra heiminn á skömmum tíma. Hvort sem stefnan er sett á það að styrkjast, auka þol, liðleika, léttast, laga líkamstöðuna, geta tekið armbeygjur, hlaupið maraþon eða það að líða betur í andlegu sálartetri og auka sjálfstraust þá er það takmark sem þú setur þér og þegar þú hefur náð því ertu sigurvegari.

 

Heimaþjálfun

Heimaþjálfunin er þannig að ég mæti heim til þín eða í þitt fyrirtæki og þjálfa þig í þínu umhverfi. Hver æfing tekur 60mín, þú arft ekki að eiga nein tæki eða tól, ég skaffa það sem til þarf.  

 

Fjarþjálfun

Heilsukvosin býður upp á fjarþjálfun. Þjálfunin getur verið sett upp hvernig sem er, þú getur hitt þjálfara bara í upphafi, 1x í viku 2x í mánuði eða hvernig sem þér hentar. Þjálfunarformið og æfingarnar miðast bara að þínum markmiðum. Ertu að stefna á keppni í þríþraut, hjólreiðum, hlaupum, vilt þú styrkja þig, þyngja eða létta þig. Einnig er valfrjálst hvort matardagbók og eftirfylgni með matarræði sé inni í fjarþjálfuninni. 

 

Innifalið í einkaþjálfun

Öll þjálfun byrjar á viðtali utan æfingatíma ásamt því að við setjum saman markmið til að ná. Fullum trúnaði varðandi þjálfun og utan þjálfunar er heitið.

Það sem er innifalið í einkaþjálfun er:

  • Viðtal í upphafi þjálfunar utan æfingatíma
  • Þjálfari fyrir þig/ykkur í 1 klst. í senn
  • Líkamsstöðugreining (framkvæmt á æfingum)
  • Æfingakerfi sem er sniðið að þínum þörfum og markmiðum
  • Matardagbók og ráðgjöf
  • Ummáls- og þyngdarmælingar  

Einnig býður Heilsukvosin upp á:

  • Heimaþjálfun.
  • Fjarþjálfun.
  • Fjarþjálfun ásamt því að mæta í x marga tíma til þjálfara á tímabili.
  • Hvað annað fyrirkomulag sem þér dettur í hug fyrir einstaklinga eða hópa sem hentar og ég get boðið upp á

Žjįlfarinn

Žjįlfari HeilsukvosarinnarMarķa Ögn Gušmundsdóttir

Ég er fædd og uppalin á Ísafirði en hef búið í Mosfellsbæ frá árinu 2006. Ég á þriggja ára stelpu kríli og tvær sjö ára Siberian Husky tíkur.
Ég æfði, og þótti gaman að prófa, ýmsar íþróttagreinar þegar ég var ung þar til ég valdi alpagreinar sem aðalgreinina mína á unglingsárunum. Ég stundaði skíðin á Ísafirði til 20 ára aldurs en þá flutti ég suður og byrjaði að þjálfa hjá Skíðadeild KR og var þar yfirþjálfari í 7 ár.

Áhugi minn á fólki og fjölbreytninni sem það býr yfir leiddi mig að því að ég fór í sálfræði við Háskóla Íslands. Lokaverkefni mitt þar, ásamt samnemanda, var stór rannsókn á tíðni áfalla og áfallastreituröskunar, ásamt því að þýða og staðfæra spurningalista um neikvæðan hugsunarhátt sem nú er notaður hjá sálfræðingum og geðlæknum.

Eftir sálfræðinámið langaði mig að auka þekkingu mína enn frekar á sviði þjálfunar og fór þá í IAK Einkaþjálfaranámið sem er yfirgripsmesta einkaþjálfaranám sem hefur verið í boði á íslandi. Námið fer inn á grunn sjúkraþjálfunar, til dæmis með líkamsstöðugreiningarprófum sem meta vöðvaójafnvægi líkamans og röng hreyfimynstur. Einnig er farið ítarlega í lífeðslisfræði þjálfunar, næringarfræði, þjálffræði og vöðva- og hreyfifræði. Námið miðar að því að hver einstaklingur hafi æfingaráætlun sem er sniðin að hans líkama, þörfum og markmiðum.

Haustið 2009 var mér boðið að taka Boot Camp þjálfararéttindi sem var frábær leið til að auka reynslu mína í þjálfun. Boot Camp hugmyndafræðin leggur upp úr hópþjálfun þar sem einstaklingurinn skiptir máli og byggist æfingaform þjálfunarinnar upp á líkamsþyngdar (body weight) æfingum. Ég hef starfað þar sem aukaþjálfari og séð um að fara yfir matardagbækur þeirra sem æfa Boot Camp og vilja fá aðhald í matarræðinu líka.

Ég er mjög virk í íþróttum og hef gaman af því að prófa nýja hluti. Sú líkamsrækt sem hefur gefið mér mest og ég hef stundað af krafti síðustu ár er Boot Camp æfingakerfið. Ég keppi bæði í einstaklings- og liðakeppnum fyrir Boot Camp í Þrekmótaröðinni og er liðið mitt núverandi Íslandsmeistari mótaraðarinnar. Hugur minn hefur staðið mikið til þríþrautar síðustu ár sem ég bæði æfi og keppi í. Þríþraut er grein sem samanstendur af því að synda, hjóla og síðan hlaupa í einum rikk og var ég valin Þríþrautarkona ársins 2009. Ég æfi og keppi einnig í hjólreiðum, bæði á fjallahjóli og götuhjóli og var valin Hjólreiðakona ársins 2010.

Það er óhætt að segja að ég sé mikil áhugamanneskja um áhugamál enda á ég mér þau mörg og tel þau vera lífsnauðsynleg hverjum manni. Auk Boot Camp, Þríþrautar og hjólreiða þá stunda ég hot yoga, spila golf, ferðast mikið um landið og hálendið, geng á fjöll og stunda útivist með sleðahundana mína.

Helstu störf į sviši žjįlfunar
  • Yfirþjálfari skíðadeildar KR. Árin 2000 – 2007
  • Aukaþjálfari Boot Camp
  • Skólastjóri sumarskóla KR, með áherslu á fótbolta og körfubolta
Menntun
  • IAK Einkaþjálfari, Keilir miðstöð, fræða, vísinda og atvinnulífs
  • BA-próf í Sálfræði við Háskóla Íslands
  • Grunnskólapróf og Stúdentspróf
Nįmskeiš
  • Samtalsmeðferðir í Hugrænni atferlismeðferð. Veturinn 2010, á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við geðsvið Landspítalans. Kennari Agnes Agnarsdóttir Sálfræðingur á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss.
  • Skyndihjálparnámskeið. Veturinn 2010, á vegum Rauðakross Íslands og Boot Camp.
  • Velgengni „Af hverju njóta sumir þjálfarar meiri velgengni en aðrir?“. Veturinn 2010, Keilir miðstöð, fræða, vísinda og atvinnulífs. Kennari Lee Taft.
  • Íþróttameiðsli „Hvenær er íþróttamaður tilbúinn til æfinga eftir meiðsli“. Haustið 2009, Keilir miðstöð, fræða, vísinda og atvinnulífs. Kennari Einar Einarsson sjúkraþjálfari.
  • Íþróttasálfræði. Haustið 2009, á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands. Kennarar Rúnar Helgi Andrason sálfræðingur og Hafrún Kristjánsdóttir Sálfræðingur.
  • Boot Camp Þjálfararéttindi. Haustið 2009, kennarar Arnaldur Birgir Konráðson, Róbert Traustason, Daði Hrafn Sveinbjarnarson, Inga Þóra Ingadóttir.
  • Sleðahundanámskeið á Vatnajökli, hundasleðar og fjallaskíði. Sumarið 2007, kennari Ítalskur Skikjöring kennari Ararad Khatchikian.
  • Stefnumótun íþróttafélaga um íþróttir barna og unglinga. Vorið 2003, á vegum aðalstjórnar KR.
  • Almenn þjálfun þrep 2A. Haustið 2003, á vegum ÍSÍ, ýmsir kennarar.
  • Skyndihjálparnámskeið. Haustið 2002, á vegum Rauðakross Íslands. Kennari Guðrún Andrésdóttir.
  • Næringafræði íþróttafólks. Haustið 2002, á vegum ÍSÍ. Kennarar Ólafur Gunnar Sæmundsson, Fríða Rún Þórðardóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson.
  • Sérgreina námskeið alpagreina þrep 1C, 2A. Vorið 2002, á vegum SKÍ og ÍSÍ. Kennarar Haukur Bjarnason og Aarne Petter.
  • Hagnýtur húmor. Vorið 2002, á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands. Kennari Karl Ágúst Úlfsson.
  • Almenn þjálfun þrep 1A, 1B, 1C. Haust 2001 – Vor 2002, á vegum ÍSÍ, ýmsir kennarar.
  • Námskeið um gerð stefnumótunarnámskrár íþróttafélaga. Vorið 2001, á vegum aðalstjórnar KR, ýmsir kennarar.
  • Grunnámskeið á skíðum. Vorið 2000, á vegum SKÍ og ÍSÍ. Kennari Hafsteinn Sigurðsson.
  • Að auki sótt fjölda námskeiða sem snúa að hundaþjálfun og ræktun.
Fyrirlestrar
  • Alþjóðleg Íþróttasálfræði-ráðstefna um afreksíþróttir. Sumarið 2010 Háskólinn Í Reykjavík. Fyrirlesarar Paul Wyelleman, Maria Psychountaki, Urban Johnson, Gregor Kuhn, Nadine Debois, Hardy Menkehorst, Daniel Birrer, Tomas Gursky, Hafrún Kristjánsdóttir, Kristinn Jakobsson, Einar Gylfi Jónsson.
  • "Tækifærin eru þarna, grípum þau". Veturinn 2010, fyrirlesari Magnús Scheving.
  • Áhrif matarræðis á geðheilsu. Veturinn 2010, fyrirlesari Vigdís Steinþórsdóttir.
  • Fræðslufundur um íþróttir og joga. Haustið 2002, á vegum ÍSÍ, fyrirlesari Guðjón Bergmann.
  • Keppnisskíðun afreksfólks. Haustið 2002, á vegum SKÍ, fyrirlesarar Kristinn Björnsson og Haukur Bjarnason.
Félagsstörf
  • Stjórnarmaður í stjórn ÞríR, þríþrautarfélag Reykjarvíkur, árið 2010 - 2011.
  • Varamaður í stjórn, stofnárs og fyrsta starfsárs Skíðagöngufélagsins Ullur, árin 2007-2008.
  • Stjórnarseta sem Yfirþjálfari Skíðadeildar KR, árin 2000-2007.

Stašurinn

Heilsukvos er staðsett í Álafoskvosinni í Mosfellsbæ. Með þessarri staðsetningu næ ég að halda hugmyndafræði Heilsukvosarinnar um einkaumhverfi, bæði inni í salnum og fyrir utan. Um leið og stigið er út úr húsinu erum við komin á skógarstíga og opin svæði sem bjóða upp á endalausa möguleika til þjálfunar.

Mosfellsbær er nær en þú heldur. Þegar Mosfellingar stefna á miðbæ Reykjavíkur þá er fyrsta hindrunin á ljósum á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegs.  Til gamans hef ég kannað málið hvað það tekur langan tíma að keyra frá nokkrum stöðum innan höfuðborgarsvæðisins að Heilsukvosinni og kemur það mörgum verulega á óvart hvað Mosfellsbær er í raun nálægt í tíma.

Að sjálfsögðu eru tímarnir miðaðir við að keyrt sé á löglegum hraða enda er náunginn jafn mikilvægur og þú sjálfur í umferðinni.

  • Mosfellsbær (Krónan) 1 mín
  • Spöngin 8 mín
  • Skeifan 11 mín
  • Kringlan 12 mín
  • Smáralind Kópavogi 14 mín
  • Tjörnin 16 mín

Hafšu samband

Sendu endilega á mig fyrirspurn ef þú vilt vita meira um Heilsukvosina, þjálfunina eða hvað sem er. Þér er einnig velkomið að koma og skoða húsnæðið og spjalla við mig á staðnum, sama hvort það er bara fyrir forvitni sakir eða af því að þú hafir áhuga á að koma í þjálfun til mín.

Einnig er þér velkomið að hringja í mig hvenær sem er, ég hringi til baka ef ég missi af símtali.

Senda skilaboš